Eins og hlustendur hefur ef til vill grunað eiga þeir nú von á brúðkaupsþætti. Kvika hófst á brotum úr myndunum Brúður og hleypidómar, Mamma Mia, Fjögur brúðkaup og jarðarför, Brúðguminn og Svartur köttur hvítur köttur.
Flestar eiga myndir sem fjalla um brúðkaup það sameiginlegt að í þeim eru flutt skemmtileg lög, sum eru meira að segja að verða klassísk í brúðkaupskvikmyndum, svo sem The Way You Look Tonight, When I Fall in Love og Chapel of Love. Síðastnefnda lagið er flutt í fjölda mynda sem hafa brúðkaup að umfjöllunarefni, meðal annars í mynd sem sló í gegn árið 1991, Föður brúðarinnar.
Margir muna örugglega ennþá eftir því þegar Emir Kusturica kom hingað á Kvikmyndahátíð árið 1999 með mynd sína Svartur köttur – hvítur köttur og hljómsveitina stórgóðu No Smoking Band. Þar var á ferðinni óheflaður húmor og fjör jafnt í tónlist sem myndmáli. Kusturica sjálfur, svolítið skrýtin skrúfa, spilaði fótbolta með hljómsveitinnni sinni, þeir kepptu við íslenska kvikmyndagerðarmenn.
Afríkusólin er engu lík segja þeir sem hana hafa séð og fundið hana verma kroppinn. Brotið í upphafi þáttar er úr þýsku kvikmyndinni Hvergi í Afríku, eða Nirgendwo in Afrika frá 2001. Kvika segir frá myndinni og höfundi hennar Caroline Link. Önnur kraftmikil kona í leikstjórastólnum er Niki Caro og hin myndin sem við rifjum upp að þessu sinni er eftir hana. Hún heitir Whale Rider og sækir þema í arf og hefðir Majóra.
Lagið sem við heyrðum heitir Vængir og er úr Brokeback Mountain eða fjallið Ölduhryggur. Myndin ein af allra bestu myndum tævanska leiksjtórans Ang Lee. Tveir smalar á fjöllum, kvaldir af ást, berjast gegn tilfinningunum sem þeir hafa til hvors annars. Það þýðir lítið. Þó þeir fari aftur niður á láglendið þar sem þeirra bíða unnustur og aðrar skyldur halda þeir áfram að hittast á laun á fjöllum.