|
Útgáfutónleikar AN ODE TO THE UMBRELLA voru í Austurbæ í gærkvöldi og heppnuðust ljómandi vel. Strákarnir í SOUNDSPELL eru hrærðir yfir frábærum viðtökum og fjölda í salnum. Tuddi er lítið og fátækt útgáfufyrirtæki, sem hefur enga burði til að auglýsa svona viðburði. Fjölmiðlarnir hafa hins vegar tekið plötunni vel og voru duglegir að segja frá tónleikunum, bæði blöð og útvarpsstöðvar. Við vissum því ekki við hverju við áttum að búast, Austurbær tekur um 500 manns svo þeir voru svolítið hræddir um að ef 20-50 manns mættu yrði lítil stemming í þessum stóra sal.
Fyrir tónleikana skreyttum við sviðið aðeins, systir Skela bassaleikara og mamma komu með frábært props, uppstoppaða fugla, rugguhest, píanóbekk o.fl. Áður voru komnir gamaldags lampar og seríur. Varð ekki lítið flott J
Áhyggjur af lítilli aðsókn voru ástæðulausar. Ég veit ekki nákvæmlega hve margir mættu en það var þétt setinn bekkurinn fyrir utan upphækkunina og hliðarvængi. Ekki verið færri en 300 manns.
Strax eftir fyrsta lag heyrði ég að salurinn var góður, það var klappað og æpt af miklum krafti. Og í þetta sinn þögðum við mömmurnar, aðal klappliðið fram að þessu J Stuðið hélt áfram allan tímann og í lokin stóðu allir upp fyrir þeim. Við fjölskyldan vorum svo undrandi og glöð yfir þessum frábæru áhorfendum að ég held við höfum staðið síðust upp.
Vinkona mín Anna.is kom og sat hjá okkur Garðari, Geir stjúpsonur kom með Sölla vin sinn með sér og Marta María samstarfskona mín og vinkona sat fyrir aftan með fjölskyldu. Ég sá líka Helga bróður á tónleikunum og Mireya vinkona var fyrir framan með kærastanum sínum. Það var svo gott að finna stuðning og hlýju frá þeim. Ef til vill hafa fleiri af vinum og fjölskyldu verið þarna en ég sá þau þá aldrei vegna fjöldans.
Guttarnir lentu í smá tækniörðugleikum en björguðu sér fljótt út úr því með húmor og skapandi í spileríi. Frábært að fylgjast með hvað þeir þroskast flótt og sjóast, þeir hafa aldrei spilað þéttar enda æft sig rosalega undanfarnar vikur. Alexander minn kláraði á sér röddina með miklum söng yfir daginn, fyrst tónleikum í Versló um morguninn og síðan löngu soundtékki rétt fyrir tónleika. Þó hann væri hás eftir fyrstu þrjú lögin keyrði hann í gegnum prógramið af fagmennsku. Sannur rokkari J Austurbær er eitthvert besta tónleikahús sem við eigum, vonandi verður það aldrei rifið!
Hér koma svo myndir frá hljóðprufunni og tónleikunum.
Ástarþakkir fyrir komuna!








|