Síða 1 af 19  |   <<     >>


31.7.2008

SOUNDSPELL Á INNIPÚKA

Hljómsveitin SOUNDSPELL vakti töluverða athygli fyrr á árinu þegar lag af frumburði þeirra "An Ode To The Umbrella" sigraði í flokki unglinga í einni stærstu lagasmíðakeppni heims, "The International Songwriting Competition". Erfitt er að skilgreina tónlist sveitarinnar en þó má altént segja að hljómurinn sé ljúfsár og melódískur og drengirnir hafa haft bersýnilegan áhuga á að prófa sig áfram með lagasmíðar og hljóðfæraskipan, ekki síst núna þegar kveður við nýjan tón. Á vordögum urðu nefnilega mannabreytingar í hljómsveitinni þegar píanóleikarinn Sigurður Ásgeir Árnason hætti og í stað hans kom Þórður Páll Pálsson gítarleikari.

Meira





10.4.2008

SOUNDSPELL sigurvegarar

Í gærkvöldi var drengjunum í SOUNDSPELL tilkynnt að þeir væru sigurvegarar í flokki unglinga í einni stærstu lagasmíðakeppni heims, International Songwriting Competition. Meðal dómara voru naglar eins og Tom Waits, Frank Black og Jerry Lee Lewis.

Meira





6.3.2008

Soundspell og undrabörnin

Og hverja eru SOUNDSPELL svo að keppa við í þessari Alþjóðlegu lagasmíðakeppni? Hverja aðra eru Tom Waits og félagar að hlusta á um þessar mundir? Ég er stundum spurð að því. Svo ég lagðist í gúgglið. Veit ekki hvernig maður lifði af fyrir tíma þess. Mér sýnist guttarnir mínir hafa lent óvart í úrslitum í bandarískri undrabarnakeppni. Reyndar eru fleiri þarna í úrslitunum sem eru ekki svona þekktir en flest eru þessir krakkar hálfgerðar stofnanir. Ekki í skóla, með svaka batterí á bak við sig og sporta sig hjá Leno og Letterman milli þess að spila á Grammy. Á meðan æfa Soundspell til skiptis í bílskúr, hjólhýsi og elliheimili og rokkmamman skrifar annað slagið fyrir þá fréttatilkynningar sem fæstir birta :o) Tónleikar á Glætunni eða Organ. Þetta er satt best að segja algjört Öskubuskuævintýri. Fjölmiðlar hafa trúlega ekki haft fyrir að kanna þetta – eða eru of uppteknir af að skrifa um handalaust fólk og syngjandi kraftakalla :o)

Antonio Pontarelli

Meira





5.3.2008

SOUNDSPELL í Uppsveiflu

Annað kvöld leika SOUNSPELL á Organ í Monitor Uppsveiflu með hljómsveitinni Sudden Weather Change. Auk efnis af "An Ode To The Umbrella" munu þeir leika splunkunýtt lag, sem ber titilinn Anagram.

Meira





5.2.2008

Guttarnir komust áfram!

Hljómsveitin SOUNDSPELL er komin í úrslit Alþjóðlegru lagasmíðakeppninnar International Songwriting Competition með lagið sitt Pound. Jæja, lífið er anski hreint skemmtilegt á Grenjaðarstað þessa dagana  Í síðasta bloggi sagði ég frá því að Soundspell komust í undanúrslit þessarar lagasmíðakeppni sem er víst ein sú stærsta í heiminum. 

Meira





30.1.2008

Sounspell í undanúrslitum

Á köldum nóvemberdegi hafði Áskell bassaleikari í Soundspell samband við Alexander og spurði hvort  það væri ekki geggjað ef Tom Waits, Jerry Lee Lewis, Smith, forsprakki The Cure og Frank Black, höfuðpaur Pixies myndu hlusta á Soundspell. Jú, Alexander hló en gat ekki annað en samþykkt það. Áskell hafið lesið um Alþjóðlega lagasmíðakeppni, International Songwriting Contest, á Sonic Bids vefsíðu og þessir kappar voru í dómnefnd keppninnar, enda keppnin ein sú stærsta í heiminum. Einnig eru á lista yfir dómara t.d. skvísurnar Nelly Furtado og Macy Gray. Í fyrrinótt gerðust svo þau undur og stórmerki að hljómsveitin fékk bréf um að eitt laga þeirra, Pound, væri komið í undanúrslit í þeirra aldursflokki.

Meira





19.1.2008

Bíóaðsókn 2007

Og það voru að berast góðar fréttir í hús. Íslendingar halda áfram að vera allra þjóða duglegastir við að fara í bíó enda fer hver maður hér á landi um 4,8 sinnum að meðaltali á ári. Að vísu hækka ég þetta meðaltal eitthvað með nokkrum sýningum á viku, en hvað um það

Helvíti er sýnd á Frönsku kvikmyndahátíðinni núna

Meira





7.1.2008

Kvikmyndaárið fyrir Lesbók Mogga

Árið 2007 var gott kvikmyndaár. Byrjaði með stofnun Græna ljóssins sem frumsýndi gleðigjafa, Litlu ungfrú sólskin, um meingallaða en sjarmerandi fjölskyldu sem fylgir dóttur sinni í barnafegurðarsamkeppni. Bleksvartur húmor í vel gerðri ádeilu á eitt ógeðfelldasta fyrirbæri samtímans. Óskarsfárið litaði febrúar en því miður fékk besta myndin, Babel, ekki verðlaunin.  Ég elska þig París, 18 örsögur eftir 20 leikstjóra var falleg – saga Coen bræðra minnisstæðust. Á vormánuðum var Fjalakötturinn endurvakinn og aðsókn kom ánægjulega á óvart.

Gildran

Meira





24.12.2007

Gleðileg jól 2007!

Jólabréfið 2007!

Kæru ættingjar og vinir!

 

Jólakveðjan frá Grenjaðarstað mæltist vel fyrir í fyrra svo við höfum ákveðið að endurtaka leikinn. Eins og þá verður sagt frá sýsli fjölskyldumeðlima á árinu í aldursröð. Séð og heyrt hvað!  J

 

Meira





4.11.2007

Airwaves myndir

Þá er hin mikla Airwaves yfirstaðin. Soundspell spiluðu á miðvikudagskvöldi þannig að blaðamennirnir af stóru miðlunum voru ekki komnir til landsns. Þó birtist ansi mikið um kappana, bæði í hérlendum blöðum og á netinu. Ég get nú ekki sett hér myndirnar sem birtust í íslensku dagblöðunum en datt í hug
að birta nokkrar skemmtilegar myndir sem voru teknar og okkur hafa áskotnast.

Meira






   Senda síðu